Hvar.is

Opinn aðgangur (OA)

Landsaðgangur hefur gert birtingar- og samning um opinn aðgang við Karger útgáfuna

Samningurinn tryggir landsaðgang að öllum rafrænum tímaritum Karger frá og með 1998. Vísindamenn á Íslandi geta birt vísindagreinar í tímaritum Karger í opnum aðgangi án þess að greiða birtingargjöld og er fjöldi greina til birtingar ótakmarkaður.

Fréttatilkynning

Leiðbeiningar um innsendingu greina til birtingar hjá Karger (á ensku)

Í samningnum felst einnig aðgangur fyrir alla landsmenn að Karger Campus KargerLEARN, sem er kennsluvefur með 15 netnámskeiðum sem fjalla um hagnýtt atriði tengdu ritunarferli vísinda- og fræðigreina og birtingum í vísindatímaritum. Námskeiðin eru alhliða og nýtast einstaklingum á öllum fræðasviðum.

Leiðbeiningar á ensku fyrir KargerLEARN.


 Landsbókasafn Íslands Háskólabókasafn og Landsaðgangur taka þátt í SCOAP3 sem er verkefni um opinn aðgang að ritum á sviði kjarneðlis-öreindafræði og er á vegum CERN stofnunarinnar í Sviss. Verkefnið er til þriggja ára (2014-2016) og tekur Landsaðgangur þátt í því árin 2015 og 2016.

Á stjórnarnefndarfundi Landsaðgangs í apríl 2016 var samþykkt að taka áfram þátt í SCOP4 vegna 2017 -2019.

Með þátttöku í SCOAP3 fella útgefendurnir Elsevier og Springer niður eða endurgreiða áskriftrarkostnaða Landsaðgangs vegna tímaritanna, Journal of High Energy Physics, European Physical Journal C frá Springer og ritanna Nuclear Physics B og Physics Letters B frá Elsevier, sem eru hluti af SCOAP3. Endurgreiðslu og afsláttarupphæðir renna til SCOAP3 verkefnisins. Ekki er um sparnað að ræða heldur er litið á þátttöku í SCOAP3 til stuðnings þróunar á opnum aðgangi að niðurstöðum vísindarannsókna. 

Gagnasöfn og tímarit í opnum aðgangi

  • DOAB – Directory of Open Access Books
  • DOAJ – Directory of Open Access Journals
  • OAlster – rafræn gögn í opnum aðgangi
  • PeerJ – útgefandi á sviði líffræði, heilbrigðisvísinda og tölvunarfræði
  • PLoS – útgefandi á sviði vísinda og læknisfræði

Varðveislusöfn

Yfirlit yfir varðveislusöfn

OpenDOAR – The Directory of Open Access Repositories

Danmörk
Den Danske Forskningsdatabasen
OpenArchive@CBS – Copenhagen Business School

England
Intute – vantar lýsingu
ORO – Open Research Online frá Open University

Finnland
Doria – National Library of Finland

Frakkland
HAL – vísindagreinar og lokaverkefni

Holland
NARCIS – National Academic Research and Collaborations Information System

Írland
RIAN – Irish research publications

Ísland
Hirsla – rafrænt varðveislusafn Landspítala háskólasjúkrahúss
Opin vísindi – stafrænt varðveislusafn íslensku háskólanna fyrir ritrýndar vísindagreinar ofl. 
Skemman – rafrænt gagnasafn íslensku háskólanna fyrir lokaverkefni og rannsóknarrit kennara og fræðimanna

Noregur
BORA – UiB – Bergen Open Research Archive
High North – Research Documents. Efni á fjölbreyttu fræðasviði. Upplýsingagátt bókasafns háskólans í Tromsö
NORA – Norwegian Open Research Archives

Svíþjóð
SwePub – Vetenskaplig publicering vid svenska lärosäten
DiVA – Digitala Vetenskapliga Arkivet


Bókasafn Menntavísindasviðs HÍ – Opinn aðgangur
Vefsíða með tenglum á efni þar sem fjallað er um Opinn aðgang

IS