Fréttir

Tilraunaaðgangur að ProQuest Engineering Collection

Tilraunaaðgangur verður að gagnasafninu ProQuest Engineering Collection út maí-mánuð. Efni í safninu er af öllum sviðum verkfræði.  

Í gagnasafninu er m.a. að finna útdrætti greina frá um 1.800 ritum, ráðstefnugögn og skýrslur auk greina í fullum texta frá um 1.100 tímaritum.     

Neðarlega á vinstri hönd í leitarviðmóti ProQuest á vef Landsaðgangs (hvar.is) er tengill í gagnasafnið.

Einnig er hægt að komast í leitarviðmót gagnasafnsins hér

Frekari upplýsingar um ProQuest Engineering Collection er að finna á eftirfarandi slóðum:
http://www.proquest.co.uk/en-UK/catalogs/databases/detail/engineering.shtml

http://www.proquest.co.uk/en-UK/catalogs/databases/detail/engineering.shtml

____________________________________________________________________________________________

Leitargluggar Landsaðgangs í samþættri leitarvél á leitir.is og á hvar.is óvirkir miðvikudag 25. apríl

Leitargluggar Landsaðgangs í samþættri leitarvél á leitir.is og á hvar.is verða óvirkir miðvikudaginn 25. apríl kl. 10.30 og fram eftir degi. Þetta er vegna kerfisvinnu við þjónustupakka. Á meðan lokuninni stendur er notendum bent á að leita með leitarvélum gagna- og tímaritasafna frá vef Landsaðgangs - hvar.is. 

____________________________________________________________________________________________

Kennsla og kynning í Web of Science, miðvikudag 11. apríl, kl. 10.30-11.30

Upptaka af kynningunni er
hér. Emma kynnti helstu nýjungar og þjónustur sem Thomson Reuters býður upp á. Lengd upptökunnar er 48:26 mín. Hljóðstyrkur í upptökunni er lágur. Íforritið Microsoft Silverlight þarf að vera uppsett í því tæki sem upptakan er sótt úr. Hægt er að sækja forritið hér

Emma Swann hjá Thomson Reuters verður með kennslu og kynningu í notkun Web of Science, miðvikudaginn 11. apríl kl. 10.30-11.30 í fyrirlestrarsal 2. hæð, Þjóðarbókhlöðu.

Emma kennir leitartækni í Web of Science og fer einnig yfir helstu breytingar í nýrri útgáfu viðmótsins. Kynningin hentar öllu starfsfólki bókasafna, nemendum og kennurum á háskólastigi. Í lok kynningar verður kaffi og köku í boði Thomson Reuters.

Þeir sem hafa áhuga á að vera á kynningunni eru beðnir um að senda tölvupóst á hvar@hvar.is  fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 10. apríl.

Póstinn þarf að einkenna með, Thomson Reuters kynning 11. apríl.

Web of Science - vísar í efni um 12 þús. ritrýndra fræðirita á helstu fræðasviðum. Heildartexti er oft aðgengilegur með krækjukerfi SFX. Nánari upplýsingar um Web of Science eru að finna á slóðinni, http://thomsonreuters.com/products_services/science/science_products/a-z/web_of_science/

__________________________________________________________________________________

Kynning og kennsla frá EBSCOhost mánudaginn 2. apríl

Upptaka af fundinum er aðgengileg hér. Lengd upptökunnar er 53:25 mín., ath. að styrkur hljóðupptökunnar er lágur. Íforritið Microsoft Silverlight þarf að vera uppsett í því tæki sem upptakan er sótt úr. Hægt er að sækja forritið hér.

Ingolf Kaspar hjá EBSCOhost heldur kynningu mánudaginn 2. apríl, kl. 10:15-11.15  í fyrirlestrarsal 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu. Ingolf kynnir rafbækur hjá EBSCOhost og áskriftarmöguleika sem boðið er upp á. Sjá kynningartexta frá Ingolf hér að neðan.

EBSCO Publishing offers a fast growing ebook platform with currently more than 325,000 titles from 750+ mostly academic publishers, see http://www.ebscohost.com/ebooks. Besides a subscription package that gives access to 70,000 academic titles, titles are available for purchase via subject collections and a title-by title online selection tool, EBSCO Collection Manager (http://ecm.ebscohost.com).  

Logins to the ECM Collection Manager can now be requested via http://www.ebscohost.com/ebooks/ecm-login-request

EBSCO eBook Collection supports PDA, the option that libraries will only own and be charged for titles which their library patrons actually request and use, see http://www.ebscohost.com/ebooks/patron-driven-acquisition.

Kynningin fram á ensku og upptaka af henni verður aðgengileg á vef Landsaðgangs - hvar.is, fljótlega að henni lokinni.

Þá verður einnig í boði kennsla í tölvuveri Þjóðarbókhlöðu mánudaginn 2. apríl, kl. 11:30-12:30/13:00 eftir því sem þurfa þykir. Ingolf ætlar að sýna nýjungar í viðmóti EBSCOhost og ýmsa möguleika þess fyrir þá sem lengra eru komnir.  

Þeir sem hafa áhuga á a sækja viðburðina eru beðnir um að tilkynna þátttöku á póstfangið hvar@hvar.is fyrir kl. 12:00 föstudaginn 30. mars. Vinsamlegast auðkennið á hvorn viðburðinn (eða báða) óskað er eftir að sækja. Í tölvuveri er aðeins sæti fyrir 10 þátttakendur og hér gildir reglan, fyrstur kemur fyrstur fær.

Póstinn þarf að einkenna með: EBSCOhost kynning 2. apríl.

________________________________________________________________________________

Ársfundur Landsaðgangs, 23. mars 2012

Ársfundur Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum verður haldinn í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, föstudaginn 23. mars kl. 15.00.

Dagskrá

1. Nýjar þjónustur í leitir.is
2. Fundargerð 5. ársfundar
3. Starf stjórnarnefndar
4. Ársskýrsla 2011
5. Ársreikningur 2011
6. Greiðsluskipting 2012
7. Önnur mál

Nánari upplýsingar og gögn verða að finna á þessum vef, sjá ársskýrslu fyrir árið 2011 og fundargerð ársfundar 18. mars 2011

Skýrsla stjórnarnefndar – glærur
Ársskýrsla landsaðgangs - glærur

Upplýsingar um notkun er að finna hér en einnig á síðunni Um landsaðgang, sjá Notkunartölur.

Fundurinn er öllum opinn en vinsamlega tilkynnið þátttöku til Erlu Bjarnadóttur á netfangið erlabj@landsbokasafn.is í síðasta lagi, miðvikudaginn 21. mars.

Upptaka af fundinum er að finna hér.
Ath. til að geta opnað upptökuna þarf viðbótin Microsoft Silverlight að vera uppsett í því tæki sem notað er. Hægt er að sækja viðbótina hér.

Tímasetningar einstakra dagskrárliða.

Setninga 6. ársfundar, 00:00:17
Nýjar þjónustur í leitir.is 00:01:45
Fundargerð síðasta ársfundar, 00:14:10 
Starf stjórnarnefndar,
00:17:05
Ársskýrsla 2011, 00:34:30
Ársreikningur og fjárhagsáætlun 2012, 00:48:05
Önnur mál, 01:00:50 

________________________________________________________________________________

Veffundur í noktun leitarviðmóts ProQuest Central 8. mars 2012

Upptaka af veffundi með Bjorn Olofsson er aðgengileg hér.

Á veffundinum sýndi Bjorn leitir í ProQuest Central gagnasafninu, frá einföldum leitum í notkun þjónustna fyrir lengra komna.

Ath. nokkrar hljóðtruflanir eru í upptökunni framan af en lengd hennar er um 55 mín.

Til þess að sjá og heyra fundinn þarf Java eða WebEx Player viðbót að vera uppsett í því tæki sem notað er.

Hægt er að sækja Java viðbót hér.
Hægt er að sækja WebEx Player (velja ARF Player) viðbóti hér.

________________________________________________________________________________

Kynning frá Oxford University Press 29. febrúar

Upptaka frá kynningunni er aðgengileg hér.

Mark Turner
hjá Oxford University Press heldur kynningu miðvikudaginn 29. febrúar, kl. 09.30-11.00 í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu, 2. hæð. Mark kynnir útgáfu og starfsemi OUP, segir frá helstu gagnasöfum og því sem er á döfinni hjá fyrirtækinu. Aðalefni kynningarinnar verður sýnikennsla í leit í upplýsingagáttunum Oxford Art Online og Oxford Music Online sem eru í Landsaðgangi. Hlé verður á kynningunni um kl. 10 og boðið upp á hressingu í boði OUP.

Fyrir þá sem vilja kynna sér til hlítar leitarviðmót OAO og OMO gefst kostur á að sækja kennslustund með Mark í tölvuveri í Þjóðarbókhlöðu, 3. hæð. Kennslan hefst kl. 11.15 og stendur í um 60-90 mínútur. Þeim sem hafa áhuga á að nýta sér kennsluna eru hvattir til að skrá sig sem fyrst þar sem aðeins er aðstaða fyrir tíu þátttakendur í einu í tölvuverinu.

Tilkynningu um þátttöku sendist með tölvupósti til umsjónarmanns Landsaðgangs á póstfangið birgirb@landsbokasafn.is fyrir kl. 15.00 þriðjudaginn 28. febrúar. Vinsamlegast að einkenna sendinguna með; Oxford University Press kynning 29. febrúar og tiltaka á hvorn viðburðinn (eða báða) ætlunin er að sækja.

Kynningin í fyrirlestrarsal verður tekin upp og gerð aðgengileg á vef Landsaðgangs – hvar.is.

Í ferðinni heimsækir Mark einnig starfsfólk Listaháskóla Íslands.

Oxford Art Online er upplýsingagátt fyrir efni á öllum sviðum lista- og hönnunar. Í OAO er Grove Art Online, The Oxford Companion to Western Art, Ancyclopedia of Aesthetics og The Concise Oxford Dictionary of Art terms. Upplýsingagáttin hentar öllum listunnendum og nemendum á öllum skólastigum. Efnið er ritað af sérfræðingum, fjöldi mynda af listaverkum er í safninu.

Oxford Music Online er upplýsingagátt fyrir efni um allar tónlistarstefnur. í OAO er The Oxford Dictionary of Music, Grove Music Online og The Oxford Companion to Music. . Upplýsingagáttin hentar öllum tónlistarunnendum og nemendum á öllum skólastigum. Efnið er ritað af sérfræðingum, fjöldi mynda af listaverkum er í safninu.

Bjorn Olofsson hjá ProQuest heldur kynningu þriðjudaginn 20. september kl. 09.00-10.30 í fyrirlestrarsal 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu. Á kynningunni mun Bjorn segja stuttlega frá því sem ...(meira)
Notendur gagnsafnsins ProQuest Central og tilvísanasafnsins Web of Science hafa lent í vandræðum með leitarviðmóti þeirra. Leitarniðurstaða birtist ekki í Web of Science og felligluggi opnast ekki í ...(meira)
Kynning frá EBSCOhost | 15.04.2011
Ingolf Kaspar hjá EBSCOhost heldur kynningu miðvikudaginn 27. apríl kl. 13-14 í fyrirlestrarsal 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu. Kynntar verða  eBooks (rafbækur) og EBSCOhost Mobile.  Kynningin fram á ensku ...(meira)
Það er tímabundinn kynningaraðgangur (til loka júní) að 274 rafbókum (eBooks) hjá EBSCOhost. Bækurnar eru aðgengilegar á vef EBSCOhost (hvar.is, velja EBSCOhost). Í viðmóti EBSCOhost er smelt á hlekkinn ...(meira)
Thomson Reuters hefur tilkynnt uppfærslu á viðmóti (í beta-útgáfu) Web of Knowledge fyrir tilvísanagagnasafnið Web of Science. Nánari upplýsingar um nýjungar eru að finna á kynningarvefnum Discovery Starts ...(meira)
Ársfundur Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum verður haldinn í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, föstudaginn 18. mars kl. 15.00. ...(meira)
Monique van de Kamp og Richard Bennet hjá Springer útgáfufyrirtækinu heimsækja Ísland 28. október. Líkt og áður í heimsóknum frá Springer verður boðið upp á kynningu og sýnikennslu fyrir ...(meira)
M ax Dumoulin hjá Elsevier heimsækir Ísland í viku 37 og heldur kynningu þriðjudaginn 14. september í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu kl. 11.-12/12.30. Kynningin fer fram á ensku.  Max mun segja ...(meira)
Í sumar og haust hafa leitarviðmót nokkurra tímaritasafna verið uppfærð. Þetta eru Sage, ScienceDirect, Springer og Blackwell (Wiley). Tilgangur uppfærslna er að bæta og auðvelda notendum leitir. ...(meira)
Við þökkum öllum þeim 1068 notendum Landsaðgangs sem tóku þátt í könnun sem fram fór á vef hans. Svörin munu nýtast við gerð nýs vefs sem unnið er að. Verið er að gera könnun á notkun vefs ...(meira)