Könnun á vef Landsaðgangs
Við þökkum öllum þeim 1068 notendum Landsaðgangs sem tóku þátt í könnun sem fram fór á vef hans.Svörin munu nýtast við gerð nýs vefs sem unnið er að. Verið er að gera könnun á notkun vefs Landsaðgangs - hvar.is. Niðurstöður könnunarinnar verða notaðar við gerð nýs vefs.Það tekur um tvær mínútur að svara könnuninni.Ekki er hægt að tengja svör við einstaklinga. Meira
Ársfundur Landsaðgangs 19. mars 2010
Ársfundur Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum verður haldinn í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, föstudaginn 19. mars kl. 15.00.Dagskrá1. Fundargerð 3. ársfundar2. Starf stjórnarnefndar3. Tilnefning fulltrúa í stjórnarnefnd4. Ársskýrsla 20095. Ársreikningur 20096. Greiðsluskipting 20107. Önnur málUpptaka af Ársfundi Landsaðgangs ... Meira
ScienceDirect lokað tímabundið vegna viðhalds
Aðgengi að tímaritasafni ScienceDirect er lokað tímabundið aðfaranótt sunnudagsins 14. mars frá kl. 3:30 fram til hádegis sama dag.Lokunin er vegna viðhalds útgefanda. Meira
ScienceDirect lokað tímabundið vegna viðhalds söluaðila
Aðgengi að tímaritasafninu ScienceDirect verður lokað tímabundið laugardaginn 23. janúar frá kl. 13 til kl. 1 aðfaranótt sunnudags 24. janúar. Lokunin er vegna venjubundins viðhalds hjá söluaðila.Meira
Landsaðgangur tekur þátt í ICOLC
Á fundi stjórnar Landsaðgangs 9. október 2009 var samþykkt að gerast þátttakandi í ICOLC – International Coalition of Library Consortia. Samtökin voru stofnuð 1996 og eru óformleg samtök bókasafna og samlaga (kaupenda) að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Tilgangur ICOLC er m.a. að miðla upplýsingum til þátttakenda um þætti sem tengjast áskriftum að rafrænu efni. Á vegum samtakanna er starfræktur ... Meira
sjá allar fréttir...
