Heimsókn frá Elsevier


Category: is
Posted by: admin
Max Dumoulin hjá Elsevier heimsækir Ísland í viku 37 og heldur kynningu þriðjudaginn 14. september í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu kl. 11.-12/12.30. Kynningin fer fram á ensku. 

Max mun segja stuttlega frá nýjungum í viðmóti (platform) ScienceDirect/Scopus/Hub
(Sjá: www.info.sciverse.com).

Þá fjallar hann um nýtt efni hjá Elsevier, s.s. rafbækur, nýjar ritraðir og uppsláttarrit
(Sjá: http://www.info.sciverse.com/sciencedirect/content/books). Einnig kynnir hann í stuttu máli Brain Navigator (Sjá: http://www.brainnav.com/home)

Þá verða reifaðir nýjir möguleikar í Scopus (Sjá: http://www.info.sciverse.com/scopus/)
og Reaxys verður kynnt (Sjá: www.info.reaxys.com) en það er tæki er nýtist í við rannsóknir í efnafræði.

Ef tími gefst til lýkur Max kynningunni með því að segja frá SciVal (Science Valuation) sem er ný þjónusta við háskóla, rannsóknastofnanir, rannsakendur og rannsóknir
(Sjá: www.scival.com og http://www.info.spotlight.scival.com/).

Þeir sem hafa áhuga á að sækja viðburðinn eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna þátttöku fyrir miðnætti sunnudaginn 12. september.
Þáttökutilkynningu þarf að auðkenna með: Kynning Elsevier og sendist á póstfangið hvar@hvar.is.

Stutt kaffihlé verður um kl. 11.30 og veitingar í boði Elsevier.