Kynning frá ProQuest 20. september
Category: is
Posted by: admin
Bjorn Olofsson hjá ProQuest heldur kynningu þriðjudaginn 20. september kl. 09.00-10.30 í fyrirlestrarsal 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu.
Á kynningunni mun Bjorn segja stuttlega frá því sem er efst á baugi hjá ProQuest og að því loknu kynna helstu nýjungar í nýu leitarviðmóti ProQuest Central/CSA.
Að lokinni kynningu í fyrirlestrarsal verður sýnikennslu í tölvuveri á 3. hæð í Þjóðarbókhlöðu þar sem þátttakendum gefst kostur á að kynnast frekar leitarviðmótinu undir handleiðslu Bjorns. Sýnikennslan verður kl. 10.50-12.00. Aðeins eru sæti fyrir tíu mans í tölvuverinu – fyrstur kemur fyrstur fær.
Þeir sem hafa áhuga á að sækja kynningu og/eða sýnikennslu í tölvuveri, eru vinsamlegast beðnir um að senda þátttökutilkynningu merkta, ProQuest kynning 20. september á umsjónarmann Landsaðgangs á póstfangið, birgirb@landsbokasafn.is fyrir kl. 12.00, mánudaginn 19. september. Gefið til kynna hvort ætlunin sé að sækja annan eða báða atburðina.
Bjorn mun einnig sækja heim Listaháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.
Óvíst er hvort hægt verður að senda kynninguna út eða taka hana upp vegna bilunar í hljóðkerfi í fyrirlestrarsal.

Íslenska
English
Vefhringur 