Velkomin á hvar.is!

myndir/raudor.jpg Hvar.is er vefur landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Aðgangurinn er opinn og endurgjaldslaus hjá notendum á Íslandi sem eru tengdir íslenskum netveitum þar sem hið opinbera, bókasöfn, stofnanir og fyrirtæki hafa þegar greitt fyrir áskriftirnar.

myndir/raudor.jpg Hvað er í aðgangi? Til að vita hvað er aðgengilegt, fer fólk í tímaritalistana hér til vinstri. Leiðbeiningar um notkun þeirra eru einfaldar, og tekur um tvær mínútur að skoða. Með því að smella á krækjurnar til vinstri er farið beint inn í gagnasöfnin. Notendur leita í hverju safni fyrir sig eða nota samsteypuleitina efst til vinstri.

myndir/raudor.jpg Leiðbeiningar um hvernig eigi að bregðast við aðgangsvanda, um leitir í gagnasöfnunum, hvernig finna eigi tímarit og sjá hvaða árgangar eru aðgengilegir í hverju þeirra eru hér að ofan. Sjá einnig hjálpar-, kynningar- og kennsluefni sem er tiltækt á ensku og íslensku um gagnasöfn í áskrift.

myndir/raudor.jpg Hér er aðgangur að fullum texta greina úr fleiri en 14.000 tímaritum auk útdrátta úr greinum úr yfir 6.000 tímaritum, 12 gagnasöfnum, fullum texta yfir 10.000 greiningarskýrslna og 500 rafbóka. Nokkur bókasöfn í landinu eru einnig með rafrænar áskriftir utan landsaðgangs.

Fréttir

3. sept. 2010 | , Leitarviðmót nokkurra tímaritasafna uppfærð

Í sumar og haust hafa leitarviðmót nokkurra tímaritasafna verið uppfærð. Þetta eru Sage, ScienceDirect, Springer og Blackwell (Wiley). Tilgangur uppfærslna er að bæta og auðvelda notendum leitir. Uppfærslurnar snerta ekki áskriftir hjá viðkomandi birgjum.    SageÍ júní síðastliðnum uppfærði Sage viðmót sitt. Fyrir þá sem vilja kynna sér breytingarnar eru upplýsingar að finna á þessari vefsíðu og h ...

Meira
 

14. apr. 2010 | , Könnun á vef Landsaðgangs

Við þökkum öllum þeim 1068 notendum Landsaðgangs sem tóku þátt í könnun sem fram fór á vef hans.Svörin munu nýtast við gerð nýs vefs sem unnið er að. Verið er að gera könnun á notkun vefs Landsaðgangs - hvar.is. Niðurstöður könnunarinnar verða notaðar við gerð nýs vefs.Það tekur um tvær mínútur að svara könnuninni.Ekki er hægt að tengja svör við einstaklinga.

Meira
 

17. mars 2010 | , Ársfundur Landsaðgangs 19. mars 2010

Ársfundur Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum verður haldinn í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, föstudaginn 19. mars kl. 15.00.Dagskrá1. Fundargerð 3. ársfundar2. Starf stjórnarnefndar3. Tilnefning fulltrúa í stjórnarnefnd4. Ársskýrsla 20095. Ársreikningur 20096. Greiðsluskipting 20107. Önnur málUpptaka af Ársfundi Landsaðgangs ...

Meira